Valur 0 - 1 Þróttur R.
0-1 Unnur Dóra Bergsdóttir ('30 )
Rautt spjald: Alexia Marin Czerwien, Þróttur R. ('59) Lestu um leikinn
0-1 Unnur Dóra Bergsdóttir ('30 )
Rautt spjald: Alexia Marin Czerwien, Þróttur R. ('59) Lestu um leikinn
Unnur Dóra Bergsdóttir var hetja Þróttar þegar liðið lagði Val í eina leik kvöldsins í Bestu deild kvenna.
„Frábært samspil hjá Unni Dóru og Björgu, sem endar með frábærri stungusendingu inn fyrir frá Björgu á Unni. Hún rennir sér svo á boltann framhjá Tinnu Brá og inn í autt markið," skrifaði Snæbjört Pálsdóttir í beinni textalýsingu þegar Unnur Dóra skoraði fyrir Þrótt eftir hálftíma leik.
Eftir tæpan klukkutíma dró heldur betur til tíðinda þegar Alexia Marin Czerwien, leikmaður Þróttar, fékk mjög heimskulegt rautt spjald. Hún fékk sitt annað gula spjald fyrir að sparka boltanum í burtu.
En þessi heimska kom ekki í bakið á Þrótturum því Valur náði ekki að skora jöfnunarmark, og lokatölur 0-1 fyrir gestina úr Laugardalnum.
Þróttur er í fjórða sæti með tólf stig eftir sjö leiki á meðan Valur er með sjö stig í sjöunda sæti.



