Portúgalski miðvörðurinn Rúben Dias er sagður ósáttur hjá Manchester City eftir brottför Pep Guardiola og hefur samkvæmt CaughtOffside beðið umboðsmann sinn um að kanna möguleika á félagaskiptum.
Þessi staða hefur vakið áhuga nokkurra stærstu félaga Evrópu en PSG, Bayern München og Real Madrid eru öll sögð fylgjast grannt með þróun mála.
Þessi staða hefur vakið áhuga nokkurra stærstu félaga Evrópu en PSG, Bayern München og Real Madrid eru öll sögð fylgjast grannt með þróun mála.
Dias gekk til liðs við City árið 2020 og skrifaði síðar undir langtímasamning sem bindur hann við félagið til ársins 2029.
Dias hefur mikilvægur í vörn Manchester City undanfarin ár, en óvissa um nýja stefnu félagsins eftir brotthvarf Guardiola virðist hafa opnað á vangaveltur um framtíð hans.
Þrátt fyrir það er City í sterkri samningsstöðu vegna langtímasamnings leikmannsins.
Ef Dias ákveður að yfirgefa Etihad verður hann eitt stærsta nafn sumargluggans.
