Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. mars 2019 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Sjáðu tvo frábæra klobba hjá Sancho
Sancho og Hudson-Odoi spiluðu í gær
Sancho og Hudson-Odoi spiluðu í gær
Mynd: Getty Images
Jadon Sancho, vængmaður Borussia Dortmund, var í fyrsta sinn í byrjunarliði enska landsliðsins í gær. England mætti Tékkum og vann leikinn sannfærandi, 5-0.

Sancho lagði upp fyrsta mark Englendinga þegar hann átti sendingu á Raheem Sterling. Sancho spilaði allan leikinn.

Sancho, sem verður nítján ára á mánudaginn, átti líklega tilþrif leiksins í gær. Hancho byrjaði á því að klobba Filip Novak, vinstri bakvörð Tékka áður en hann klobbaði svo David Pavelka í kjölfarið.

Sjáðu þessa takta hjá Sancho með því að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner