Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
banner
   mán 02. júní 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hildur Antons: Spenntar að fá að vígja grasið
Icelandair
EM KVK 2025
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var mjög svekkjandi að taka bara eitt stig úr þessum leik. Mér fannst við eiga skilið að fá þrjú stig. Við áttum fleiri opin færi og vörðumst vel mest allan leikinn," sagði Hildur Antonsdóttir, landsliðskona, um jafnteflið gegn Noregi í Þjóðadeildinni á dögunum.

Liðið mætir Frakklandi í lokaleik keppninnar á Laugardalsvelli en það er nýbúið að leggja nýtt hybrid gras á völlinn.

„Við erum mjög spenntar að fá að vígja grasið. Við löbbuðum niður áðan og það lítur ekkert smá vel út. Geggjað að taka síðasta heimaleikinn fyrir EM á nýju grasi," sagði Hildur.

Liðið þarf að vinna leikinn til að eiga möguleika á að ná 2. sætinu af Noregi.

„Við förum aldrei inn í leik með hugsun um að tapa. Við ætlum að leggja alla orku í þennan leik og reyna ná þremur stigum," sagði Hildur.
Slapp