Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 12:52
Elvar Geir Magnússon
Valdsvið VAR eykst og nýju reglurnar á HM
Clement Turpin, einn besti dómari heims.
Clement Turpin, einn besti dómari heims.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Allt sauð upp úr í leik Benfica og Real Madrid.
Allt sauð upp úr í leik Benfica og Real Madrid.
Mynd: EPA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nýjar reglur verða teknar í noktun þegar HM fer af stað. Íslenskir fótboltaáhugamenn eru fanir að þekkja nokkrar af þeim ágætlega en þær hafa verið notaðar á Íslandsmótinu þetta tímabilið.

Fast tekið á leiktöfum
Stærstu breytingarnar eru til að auka hraða og flæði leiksins og munu dómarar telja í fimm sekúndur í innköstum og útspörkum eins og hefur verið gert í íslensku deildinni. Hitt liðið fær innkastið ef menn eru of lengi og í útspörkum getur andstæðingurinn fengið hornspyrnu.

Þegar markverðir eru með boltann í leik hafa þeir átta sekúndur til að losa hann og í skiptingum hafa leikmenn tíu sekúndur til að fara af velli þegar fjórði dómarinn er búinn að lyfta skiltinu. Ef leikmenn eru of lengi af velli þá þarf liðið að spila manni færri í að minnsta kosti mínútu.

Leikmenn sem þurfa aðhlynningu þurfa að vera utan vallar í eina mínútu en markverðir eru undanskildir og einnig eru undantekningar þegar meiðslin eru alvarleg eða árekstur við markvörð eða samherja hefur átt sér stað.

Lið mega ekki yfirgefa völlinn til að fá taktískar leiðbeiningar ef markvörðurinn er að fá aðhlynningu.

Vatnspásur í öllum leikjum
Eftir um 23 mínútna leik í hvorum hálfleik verður vatnspása í öllum leikjum á HM. Hlé verður gert í um þrjár mínútur. Þjálfararnir munu vafalítið nota þessi hlé til að koma skilaboðum til leikmanna sinna eins og um leikhlé í körfubolta eða handbolta sé að ræða. Sjónvarpsstöðvar fá glugga til að selja auglýsingar.

Bannað að halda fyrir munninn
Þegar leikmenn eru að tjá sig mega þeir ekki halda fyrir munninn líkt og Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, gerði í leik gegn Real Madrid. Vinícius Júnior sakaði hann um kynþáttafordóma.

Leikmenn sem halda fyrir munninn í slíkum samskiptum eiga að fá rautt. Ef um eðlileg og vinaleg samskipti er að ræða mega menn hinsvegar halda fyrir munninn.

Meira VAR
Hingað til hefur verið leyft að nota VAR til að endurskoða mörk, skoða mögulegt rautt spjald og vítaspyrnur. Nú bætist við að VAR getur leiðrétt seinna gula spjald sem leikmenn fá, þegar rangir leikmenn fá spjöld og þegar lið fá ranglega hornspyrnur. Hinsvegar bregst VAR ekki við þegar dæmd er markspyrna sem átti að vera horn.

Leikurinn tapaður ef lið yfirgefur völlinn
Eftir uppákomuna í úrslitaleik Afríkukeppninnar er komin sú regla að ef lið yfirgefur völlinn í mótmælaskyni þá telst það gefa leikinn. Þá eiga starfsmenn að fá rautt ef þeir reyna að fá leikmenn til að yfirgefa völlinn.

Nákvæmari rangstöðutækni
Ný hálfsjálfvirk rangstöðutækni verður notuð á HM og á hún að gefa nákvæmari upplýsingar á skjótari hátt. Aðstoðardómarar geta þá lyft flagginu strax upp í stað þess að bíða eftir að sókn klárist.

Hljóðmerki verður sent samstundis á aðstoðardómarana ef leikmaður er meira en tíu sentimetrum fyrir innan. Það verður enn innan valdsviðs aðstoðardómarans hvort hann lyfti flagginu strax eða bíði, ef grunur er um að tæknin sé að bregðast.

Tæknin mun ekki geta skorið úr um tæpustu rangstöðurnar en FIFA vonast til að þetta geti minnkað pirring yfir því þegar flaggið er lengi á loft og leikmenn lendi síður í meiðslahættu í baráttunni áður en dæmt er. Með þessari tækni sjá áhorfendur líka skýrari rangstöðumyndir.

FIFA hefur einnig samþykkt að tæknin verði notuð til að skoða hvort boltinn hafi farið út af vellinum í aðdraganda marks.



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner