Leikmaður sem fær aðhlynningu þarf að vera utan vallar í eina mínútu eftir að leikurinn fer aftur af stað eftir stoppið.
FIFA tilkynnti í vikunni fimm reglubreytingar sem verða við lýði á komandi heimsmeistaramóti. Breytingunum er ætlað að sporna gegn töfum og auka flæði leikja.
Sömu reglur, fyrir utan reglubreytingar á myndbandsdómgæslu, munu taka gildi í Bestu deildinni sem hefst eftir tíu daga.
Þá hefur jafnframt verið gerð breyting á leikbönnum hérlendis. Þar sem leikmenn fara sjálfkrafa í bann eftir spjaldasöfnun en ekki þarf að úrskurða sérstaklega um það á fundi aganefndar. Einnig var gerð sú breyting að spjöld fylgja ekki lengur leikmönnum á milli keppna.

Reglubreytingarnar fimm:
Tíu sekúndur til að yfirgefa völlinn
Leikmaður sem er tekinn af velli hefur tíu sekúndur til að yfirgefa völlinn. Ef það tekur lengri tíma þarf varamaðurinn að bíða í eina mínútu áður en hann kemur inn á og liðið leikur manni færri þá mínútu.
Beðið í mínútu eftir aðhlynningu
Leikmaður sem fær aðhlynningu þarf að vera utan vallar í eina mínútu eftir að leikurinn fer aftur af stað eftir stoppið. Undantekning er þó gerð á ef um er að ræða brot sem leiðir til guls eða rauðs spjalds.
Tímarammi á markspyrnur og innköst
Markspyrnur og innköst skulu tekin innan fimm sekúndna. Ef liðið fer yfir tímann fær andstæðingurinn boltann.
Fyrirliðinn má aðeins ræða við dómarann
Einungis fyrirliði liðsins má mótmæla eða spyrja dómara út í ákvarðanir. Aðrir leikmenn sem nálgast dómara eiga á hættu að fá gult spjald.
Aukin völd VAR
Myndbandsdómgæsla fær aukið vægi og getur nú skorist í leikinn í atvikum ef leikmaður fær rauða spjaldið fyrir klárlega óréttlátt seinna gula spjald. VAR má líka stíga inn í ef dómari leiksins gefur leikmanni spjald þegar hitt liðið var í raun brotlegt. Þá má það jafnframt stíga inn í ef hornspyrna er ranglega dæmd.
Í útvarpsþætti Fótbolta.net um þarsíðustu helgi var slegið á þráðinn til Þóroddar Hjaltalín, dómarastjóra KSÍ, og ræddi hann um yfirvofandi breytingar. Mögulegt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér að neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Athugasemdir