Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 05. september 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Alisson byrjaður í rólegum æfingum
Alisson meididst í fyrstu umferð.
Alisson meididst í fyrstu umferð.
Mynd: Getty Images
Brasilíski markvörðurinn Alisson Becker er byrjaður að æfa aftur eftir að hafa tognað illa á kálfa í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar gegn Norwich.

Tæpur mánuður er síðan Alisson meiddist en hann er nú farinn að stíga næstu skref í endurhæfingunni með léttum æfingum.

Alisson er ekki ennþá farinn að æfa með bolta en Liverpool hefur ekki gefið út hvenær er reiknað er með að hann snúi aftur í markið.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, sagði um síðustu helgi að félagið ætli ekki að flýta sér og Alisson fái sinn tíma í endurhæfingu.

Spænski markvörðurinn Adrian hefur varið mark Liverpool í fjarveru Alisson en liðið er með fullt hús stiga í ensku úrvalsdeildinni.

Hér að neðan má sjá Alisson æfa í dag.

Athugasemdir
banner
banner
banner