Victor Osimhen virðist vera á leið til Al Hilal í Sádi -Arabíu en félagið hefur lagt fram formlegt tilboð í leikmanninn. Osimhen var á láni hjá Galatasaray frá Napoli á tímabilinu.
Framherjinn er sagður fá 30 milljónir evra í árslaun, fyrir bónusa. Það eru vel rúmlega fjórir milljarðar íslenskra króna.
Al Hilal var með sjóð kláran til að nota í Mo Salah en Salah framlengdi samning sinn við Liverpool og stór hluti af þeim sjóð verður nú settur í Osimhen.

Hann er með 75 milljóna evra riftunarákvæði í samningi sínum við Napoli og er Al Hilal sagt tilbúið að virkja það.
Það eru væntingar um það hjá félaginu að félagaskiptin geti gengið í gegn áður en HM félagsliða hefst. Al Hilal vonast eftir svari frá Osimhen fyrir lok föstudags.
Nígeríski framherjinn hefur verið orðaður við bæði Chelsea og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni, en virðist vera á leið til Sádi-Arabíu.
Athugasemdir