Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ait Nouri færist nær Man City - Í viðbragðsstöðu
Rayan Ait Nouri.
Rayan Ait Nouri.
Mynd: EPA
Manchester City er að ganga frá kaupum á bakverðinum Rayan Ait Nouri frá Wolves.

Samkvæmt heimildum Sky Sports hafa félögin komist að samkomulagi um kaupverð upp á í kringum 40 milljónir evra, eða 33,7 milljónir punda.

Félögin er enn í viðræðum að klára einhver smáatriði en Ait Nouri er að undirbúa sig fyrir að ferðast til Englands úr landsliðsbúðum Alsír til að ganga frá skiptunum. Hann hefur sjálfur tjáð sig um áhuga Man City í dag.

„Allir vita að Guardiola er frábær stjóri," sagði Ait Nouri en bætti svo við að hann væri einbeittur á næstu leikjum með Alsír.

Ait Nouri er 23 ára gamall og hefur leikið vel með Wolves frá árinu 2021. Síðustu ár hefur hann verið einn besti bakvörður ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir