Grískir fjölmiðlar segja frá því að Arsenal sé í viðræðum við belgíska félagið Genk um kaup á gríska undrabarninu Konstantinos Karetsas.
Hinn 17 ára gamli Karetsas á aðdáendur víða um Evrópu en hann þykir mjög svo efnilegur. Real Madrid er á meðal félaga sem hann hefur verið orðaður við.
Hinn 17 ára gamli Karetsas á aðdáendur víða um Evrópu en hann þykir mjög svo efnilegur. Real Madrid er á meðal félaga sem hann hefur verið orðaður við.
Svo virðist sem Arsenal leiði kapphlaupið en talað er um að samkomulag sé að nálgast um 38 milljón punda pakka.
Í frétt í grískum fjölmiðlum segir að Karetsas verði keyptur til Arsenal og svo lánaður aftur í eitt tímabil til Belgíu.
Karetsas getur leyst flestar stöðurnar fremst á vellinum en hann hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað tvo landsleiki fyrir Grikkland og skorað eitt mark.
Athugasemdir