Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Horfa til Frakklands í leit að arftaka Cunha
Mynd: EPA
Wolves er að íhuga að leggja fram tilboð í Evann Guessand sóknarmann Nice í Frakklandi.

Samkvæmt heimildum Sky Sports gæti Guessand kostað allt í allt meira en 25 milljónir punda.

Guessand er 23 ára og það eru mörg félög í ensku úrvasldeildinni og annars staðar í Evrópu sem fylgjast náið með honum. Hann skoraði fjórtán mörk og lagði upp níu með félagsliði sínu og Fílabeinsströndinni á liðnu tímabili.

Wolves fékk væna summu frá Manchester United fyrir Matheus Cunha, en heildarupphæðin kemur þó í nokkrum greiðslum. Það er þó eitthvað til í veskinu hjá Úlfanum.

Wolves þarf reyndar í þessum mánuði að greiða 20 milljónir punda fyrir Jörgen Strand Larsen þar sem kaupskylda er í lánssamningi hans frá Celta Vigo.
Athugasemdir
banner
banner