Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 14:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grealish svaraði fyrir sig - „Hvað viljiði að ég geri?"
Jack Grealish og Pep Guardiola.
Jack Grealish og Pep Guardiola.
Mynd: EPA
Grealish má fara frá Man City.
Grealish má fara frá Man City.
Mynd: EPA
Eins og sagt var frá í gær, þá er Jack Grealish utan hóps á HM félagsliða. Hann virðist ekki vera í plönum Manchester City fyrir framhaldið.

Grealish hefur leikið með Man City frá 2021 en hann var þá keyptur til félagsins frá Aston Villa fyrir 100 milljónir punda. Hann var alls ekki í stóru hlutverki á síðasta tímabili en hann skoraði þá þrjú mörk í 32 leikjum.

Grealish ákvað að skrá sig inn á samfélagsmiðla í dag og svara fyrir gagnrýni sem hann fékk þar.

„Hvað viljiði að ég geri, skori þrennu á 20 mínútum?" sagði Grealish og virðist ekki vera ánægður með þau tækifæri sem hann hefur fengið.

„Hef ég verið lélegur að undanförnu? Ég hef skorað þrjú mörk í síðustu þremur leikjum þar sem ég hef spilað meira en 45 mínútur," sagði Grealish jafnframt í svari við ummæli frá hlustanda talkSPORT.

Þessi síðasta færsla hjá Grealish er þó ekki sönn því hann skoraði bara eitt mark í síðustu þremur leikjum þar sem hann spilaði 45 mínútur.

Það er spurning hvað Grealish gerir næst en það er áhugi á honum frá Aston Villa, Newcastle, Everton og Napoli.
Athugasemdir
banner
banner