Inter hefur beint sjónum sínum að Christian Chivu, stjóra Parma, eftir að Como neitaði beiðni félagsins um að fá að ræða við Cesc Fabregas.
Fabregas var efstur á lista Inter eftir að Simone Inzaghi ákvað að taka við Al-Hilal í Sádi-Arabíu.
Fabregas var efstur á lista Inter eftir að Simone Inzaghi ákvað að taka við Al-Hilal í Sádi-Arabíu.
Fabregas hefur gert frábæra hluti með Como og félagið ætlar ekki að sleppa takinu af honum.
Inter hefur því núna ákveðið að reyna við Chivu sem er fyrrum leikmaður félagsins.
Chivu er 44 ára gamall og stýrði yngri liðum Inter áður en hann tók við Parma í febrúar á þessu ári. Hann hélt Parma upp í Serie A en er núna líklega að taka við stjórnartaumunum hjá Inter.
Hann spilaði fyrir Inter frá 2007 til 2014 og vann ítölsku úrvalsdeildina þrisvar og Meistaradeildina einu sinni.
Athugasemdir