Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 15:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Án þeirra væri ómögulegt fyrir mig og fleiri að hafa fótbolta sem atvinnu í dag"
Icelandair
EM KVK 2025
Fyrsta kvennalandsliðið.
Fyrsta kvennalandsliðið.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrsta kvennalandslið Íslands voru heiðursgestir þegar nýja grasið á Laugardalsvelli var vígt síðastliðið þriðjudagskvöld.

Íslenska kvennalandsliðið mætti þá Frakklandi og var niðurstaðan 0-2 tap í hörkuleik.

Stelpurnar eru á leiðinni á sitt fimmta Evrópumót í sumar en þetta var síðasti heimaleikurinn fyrir það mót. Fyrir leikinn heilsaði núverandi landslið upp á fyrsta landsliðið sem mætti Skotum í september árið 1981.

Á meðal leikmanna í fyrsta landsliðinu var Ragn­heiður Vík­ings­dótt­ir, móðir Hildar Antonsdóttur, núverandi landsliðskonu. Hildur skrifaði fallega færslu á Instagram eftir leikinn gegn Frakklandi.

„Þakklát fyrir mömmu mína og allar hinar sem börðust fyrir kvennaknattspyrnu á sínum tíma og öllum þeim sem komu á eftir þeim," skrifaði Hildur.

„Án þeirra væri ómögulegt fyrir mig og fleiri að hafa fótbolta sem atvinnu í dag."



Uppbótartíminn - Þurfum að vinna leikina á EM
Athugasemdir
banner
banner