Samkvæmt heimildum The Telegraph þarf Tottenham að greiða Ange Postecoglou fjórar milljónir punda ef félagið ákveður að reka hann úr starfi sínu.
Það eru miklar vangaveltur um framtíð Postecoglou þessa dagana. Tímabil Tottenham á Englandi var ekki gott en félagið vann þó sinn fyrsta titil í 17 ár með því að vinna Evrópudeildina.
Það eru miklar vangaveltur um framtíð Postecoglou þessa dagana. Tímabil Tottenham á Englandi var ekki gott en félagið vann þó sinn fyrsta titil í 17 ár með því að vinna Evrópudeildina.
Þessar fjórar milljónir punda kæmu ofan á tveggja milljóna punda bónusinn sem stjórinn fékk fyrir að vinna Evrópudeildina og koma liðinu með því í Meistaradeildina.
Postecoglou á tvö ár eftir af samningi sínum en hann var ráðinn til félagsins sumarið 2023.
Ef ákveðið verður að láta Postecoglou þykir Thomas Frank, stjóri Brentford, líklegasti kostuinn. Þar á eftir er Marco Silva hjá Fulham.
Athugasemdir