Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 13:00
Kári Snorrason
Pep stjóri mánaðarins í 13. sinn - Gibbs-White besti leikmaðurinn
Pep vann verðlaunin í þrettánda sinn.
Pep vann verðlaunin í þrettánda sinn.
Mynd: EPA
Pep Guardiola hefur verið valinn þjálfari mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni í þrettánda sinn á ferlinum. Manchester City vann alla þrjá leiki sína í apríl, gegn Arsenal, Chelsea og Burnley.

Aðeins Sir Alex Ferguson, sem fékk verðlaunin 27 sinnum, og Arsene Wenger, sem fékk þau 15 sinnum, hafa oftar verið valdir þjálfarar mánaðarins.

Morgan Gibbs-White var valinn leikmaður mánaðarins í fyrsta sinn á ferlinum. Hann skoraði fjögur mörk og lagði upp eitt til viðbótar í þremur leikjum í apríl.

Gibbs-White fór sérstaklega á kostum gegn Burnley þegar hann skoraði þrennu á fimmtán mínútum í 4-1 endurkomusigri.


Slapp
banner
banner
banner