Neymar og Robinho Jr., sonur fyrrum leikmannsins Robinho, lentu saman á æfingu Santos og sakaði sá yngri Neymar um líkamlegt og andlegt ofbeldi.
Samkvæmt Robinho Jr. þá átti Neymar að hafa látið móðgandi ummæli falla ásamt því að hafa fellt og slegið leikmanninn á æfingunni.
Föruneyti Robinho Jr. sendi Santos formlega kvörtun vegna hegðunar Neymars og í kjölfarið rannsakaði félagið málið.

„Svona hlutir gerast í fótbolta. Þetta átti að vera bara á milli okkar. Það varð misskilningur á æfingu, viðbrögð hjá mér þar sem ég gekk fór yfir strikið.
En strax eftir að þetta gerðist baðst ég afsökunar, við ræddum saman í búningsklefanum og náðum sáttum,“ sagði Neymar við ESPN í Brasilíu eftir leik Santos í nótt þar sem Neymar skoraði eina mark liðsins í 1-1 jafntefli.