Það braust út gríðarlegur fögnuður á Emirates vellinum þegar Arsenal tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fram fer í Búdapest. Arsenal vann seinni leikinn 1-0 eftir að sá fyrri hafði endað með 1-1 jafntefli.
Bukayo Saka skoraði sigurmarkið sem tryggði Arsenal sæti í úrslitaleiknum í fyrsta sinn í 20 ár. Starfsmenn og leikmenn Arsenal hlupu inn á völlinn eftir lokaflautið og áfanganum var fagnað með stuðningsmönnum.

„Þeir eiga skilið að vera í þessari stöðu en þeir hafa ekki unnið neitt. Mér fannst þeir fagna of mikið, fagnið þegar þið vinnið!" sagði Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United, sem var sérfræðingur í sjónvarpssal í kringum leikinn.
Ian Wright svaraði þessum ummælum, án þess þó að minnast á Rooney, á samfélagsmiðlum og sagði stuðningsmönnum Arsenal að njóta augnabliksins og hlusta ekki á 'fagnaðarlögregluna'.
„Njótið! Fótbolti snýst um stundirnar og þetta er stór stund. Njótið hennar. Vonandi verður önnur risastór stund eftir úrslitaleikinn. Þetta er frábær dagur," sagði Wright.
— Ian Wright (@IanWright0) May 5, 2026