Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Kemst Palmer í enska landsliðshópinn fyrir HM?
Mynd: EPA
Sóknartengiliðurinn Cole Palmer hefur ekki átt gott tímabil með Chelsea og er sæti hans í enska landsliðshópnum í bráðri hættu fyrir HM í Norður-Ameríku.

Á sama tíma fyrir ári síðan var Palmer einn af fyrstu mönnum á blað í byrjunarliði Englands en staðan er allt önnur í dag. Á meðan Palmer hefur ekki verið að standa sig eru ýmsir keppinautar hans um sæti í landsliðshópnum að gera frábæra hluti.

Nafnarnir Morgan Rogers og Morgan Gibbs-White hafa verið að gera frábæra hluti og þá er talið öruggt að Jude Bellingham verði með í HM-hópnum. Eberechi Eze og Phil Foden, leikmenn Arsenal og Manchester City, gera einnig tilkall til sætis í hópnum.

Samkeppnin fyrir Palmer er mikil þar sem ekki er talið líklegt að Thomas Tuchel þjálfari taki meira heldur en þrjá eða fjóra af sex fyrrnefndum leikmönnum með sér til Bandaríkjanna.
Slapp
banner