Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 12:30
Kári Snorrason
Caulker að blómstra í Tyrklandi - Á leið í bikarúrslit
Caulker var spilandi aðstoðarþjálfari Stjörnunnar síðasta sumar.
Caulker var spilandi aðstoðarþjálfari Stjörnunnar síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Steven Caulker, fyrrum spilandi aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, er að gera góða hluti sem aðstoðarþjálfari Konyaspor í Tyrklandi og er á leið í bikarúrslit.

Caulker var ráðinn sem aðstoðarþjálfari tyrkneska liðsins um miðjan febrúar en samningi hans við Stjörnunnar var rift fyrir áramót. Hann var orðaður við stjórastarf ÍBV en Aleksandar Linta hreppti stöðuna.

Það er óhætt að segja það að Konyaspor hafi farið fjallabaksleiðina í úrslitin en liðið vann Fenerbahce í 8-liða úrslitum og Besiktas í undanúrslitum.

Liðið mætir annað hvort Genclerbirligi eða Trabzonspor í úrslitaleiknum sem fer fram sunnudaginn 24. maí.

Konyaspor siglir lignan sjó í deildinni og er í 9. sæti nú þegar tvær umferðir eru eftir.

Slapp
banner
banner
banner