Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   sun 08. júní 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild kvenna: Völsungur áfram með fullt hús
Kvenaboltinn
Mynd: Völsungur
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Vestri 2 - 4 Völsungur
1-0 Alyssa Yana Daily ('20 )
1-1 Halla Bríet Kristjánsdóttir ('24 )
1-2 Halla Bríet Kristjánsdóttir ('28 )
1-3 Auður Ósk Kristjánsdóttir ('39 )
2-3 Alyssa Yana Daily ('54 )
2-4 Halla Bríet Kristjánsdóttir ('73 )

Vestri og Völsungur áttust við í eina leik gærdagsins í 2. deild kvenna og létu mörkin ekki standa á sér.

Heimakonur í liði Vestra tóku forystuna á 20. mínútu þegar Alyssa Yana Daily skoraði, en Halla Bríet Kristjánsdóttir svaraði fyrir gestina frá Húsavík.

Halla Bríet skoraði tvö mörk með stuttu millibili áður en Auður Ósk Kristjánsdóttir tvöfaldaði forystu gestanna fyrir leikhlé. Staðan var því orðin 1-3 þegar flautað var til hálfleiks.

Alyssa minnkaði muninn aftur niður í eitt mark en nær komst Vestri ekki. Halla Bríet fullkomnaði þrennuna sína á 73. mínútu svo lokatölur urðu 2-4.

Völsungur er því áfram með fullt hús stiga eftir fjórar fyrstu umferðir tímabilsins. Ísfirðingar eru aftur á móti aðeins með þrjú stig.

Vestri Elín Ólöf Sveinsdóttir (90'), Sigríður Króknes Torfadóttir, Lauren Grace Woodcock, Chloe Hennigan, Savannah Lynne Hersh, Sigrún Betanía Kristjánsdóttir, Katrín Bára Albertsdóttir (46'), Alyssa Yana Daily (79'), Una Proppé Hjaltadóttir (65'), Agnes Þóra Snorradóttir (46'), Andrea Martinez Monteagudo
Varamenn Lilja Borg Jóhannsdóttir (46'), Solveig Amalía Atladóttir, Coral Fernandez Quinonero (46'), Guðríður Vala Atladóttir (79'), Agla Vigdís Atladóttir, Friðrikka Líney Sigurðardóttir (65'), Guðbjörg Ásta Andradóttir (90')

Völsungur Harpa Jóhannsdóttir (m), Árdís Rún Þráinsdóttir, Sylvía Lind Henrysdóttir, Berta María Björnsdóttir, Alba Closa Tarres, Krista Eik Harðardóttir (52'), Guðný Helga Geirsdóttir, Katla Bjarnadóttir, Hildur Arna Ágústsdóttir (90'), Auður Ósk Kristjánsdóttir, Halla Bríet Kristjánsdóttir
Varamenn Erla Þyri Brynjarsdóttir (90), Jóhanna Heiður Kristjánsdóttir (52), Sarah Catherine Elnicky
2. deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Selfoss 5 5 0 0 18 - 4 +14 15
2.    ÍH 4 4 0 0 24 - 5 +19 12
3.    Völsungur 4 4 0 0 16 - 4 +12 12
4.    KÞ 2 1 1 0 2 - 1 +1 4
5.    Fjölnir 3 1 1 1 7 - 9 -2 4
6.    ÍR 4 1 1 2 7 - 9 -2 4
7.    Sindri 4 1 1 2 8 - 12 -4 4
8.    Álftanes 4 1 0 3 7 - 8 -1 3
9.    Einherji 3 1 0 2 5 - 7 -2 3
10.    Dalvík/Reynir 4 1 0 3 8 - 14 -6 3
11.    Vestri 4 1 0 3 7 - 16 -9 3
12.    Smári 5 0 0 5 1 - 21 -20 0
Athugasemdir
banner
banner