Enskir fjölmiðlar greina frá því að Brentford sé að horfa til stórveldanna Liverpool og Manchester City í leit sinni að arftaka fyrir Bryan Mbeumo.
Kantmaðurinn Mbeumo er gríðarlega eftirsóttur en hann er aðeins með eitt ár eftir af samningi sínum við Brentford og virðist ekki líklegur til að skrifa undir nýjan samning.
Mbeumo virðist vera á leið til Manchester United sem er búið að leggja fram rúmlega 60 milljón punda tilboð í leikmanninn öfluga.
Brentford er því að skoða Ben Doak og Oscar Bobb, efnilega kantmenn Liverpool og Manchester City, sem mögulega arftaka.
Talið er að Liverpool sé reiðubúið til að selja Doak fyrir um 30 til 40 milljónir punda en verðmiðinn á Bobb er aðeins lægri.
Athugasemdir