Það er lítið um fótbolta á hvítasunnudag. Þorlákur spilar við Spyrni í 5. deild áður en U21 landsliðið mætir Kólumbíu í æfingalandsleik.
Strákarnir okkar gerðu markalaust jafntefli við spennandi lið Brasilíu á dögunum og verður áhugavert að fylgjast með þeim gegn Kólumbíu.
Varnarmaðurinn Yeimar Mosquera, sem er á mála hjá Aston Villa, verður líklega með í leiknum ásamt Óscar Perea, sóknarleikmanni Strasbourg í Frakklandi.
Leikurinn fer fram í Kaíró, höfuðborg Egyptalands.
5. deild
13:00 Þorlákur - Spyrnir
Æfingalandsleikur
15:00 Ísland U21 - Kólumbía U20
Athugasemdir