Wrexham AFC er komið upp í Championship deildina eftir magnaðan uppgang á síðustu árum eftir að leikararnir frægu Rob McElhenney og Ryan Reynolds keyptu félagið.
Sky Sports greinir frá því að Wrexham sé í viðræðum við tvo úrvalsdeildarleikmenn um að skipta til félagsins í sumar. Wrexham vill krækja í Danny Ings frá West Ham og Ben Davies frá Tottenham, sem verða báðir samningslausir í sumar. Tottenham hefur möguleika á að framlengja samning Davies um eitt ár en talið er ólíklegt að félagið nýti sér þann kost.
Ings verður 33 ára í júlí á meðan Davies er nýlega búinn að eiga 32 ára afmæli.
Wrexham ætla að styrkja leikmannahópinn eftir fremsta megni í sumar til að vera samkeppnishæfir í Championship deildinni.
Wrexham er þó ekki eina félagið sem er áhugasamt um þessa tvo leikmenn.
Davies er varafyrirliði velska landsliðsins og er með 95 landsleiki að baki. Ings hefur spilað þrisvar sinnum fyrir enska landsliðið.
Wrexham fór beint upp úr League One deildinni á nýliðnu tímabili, með 92 stig úr 46 deildarleikjum.
Athugasemdir