
Búið er að draga í riðla fyrir undankeppnir EM í U17 og U19 aldursflokkum kvenna.
U19 landsliðið leikur í A-deild og mætir Portúgal, Danmörku og Kósovó í sterkum riðli sem fer fram í Portúgal í lok nóvember.
U17 landsliðið er í B-deild og mætir þar Slóveníu og Færeyjum í þriggja liða riðli sem verður leikinn í Slóveníu í byrjun nóvember.
Það verður spennandi að fylgjast með hvort sterkum landsliðum Íslands tekst að komast á lokamótin.
Athugasemdir