
Tijjani Reijnders er á leið í læknisskoðun hjá Manchester City, Thomas Frank vill taka Bryan Mbeumo með sér til Tottenham og Newcastle United vill fá Joao Pedro. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Hollenski landsliðsmaðurinn Tijjani Reijnders (26) fer í læknisskoðun hjá Manchester City í dag áður en hann gengur frá skiptum sínum frá AC Milan. (Sky Sports)
Thomas Frank, stjóri Brentford, mun væntanlega taka við Tottenham á næstu dögum, en hann vill ólmur fá Bryan Mbeumo (25) með sér frá Brentford. Man Utd er á einnig á eftir Mbeumo og hefur lagt fram tvö tilboð. (Mirror)
Newcastle United ætlar að setja allt púður í að fá Joao Pedro (23), framherja Brighton, eftir að félagið missti af Mbeumo. (Telegraph)
Kieran McKenna, stjóri Ipswich Town, er á lista hjá Brentford. (Talksport)
Milos Kerkez (21), leikmaður Bourbemouth, hefur dregið sig úr ungverska landsliðinu, en hann er að færast nær því að ganga í raðir Liverpool. (Mirror)
Portúgalski vængmaðurinn Rafael Leao (25) hefur tjáð AC Milan að hann vilji fara frá félaginu. Milan vill 70 milljónir evra fyrir Leao sem er sagður efstur á blaði hjá Bayern München. (Florian Plettenberg)
Chelsea ætlar að leggja fram annað tilboð í Mike Maignan (29), markvörð Milan og franska landsliðsins, en fyrsta tilboðinu var hafnað sem var langt frá ásettum verðmiða. (Calciomercato)
Juventus hefur náð samkomulagi við Paris Saint-Germain um að framlengja lánsdvöl franska sóknarmannsins Randal Kolo Muani (26). Hann mun því spila með Juventus á HM félagsliða í sumar. (Sky á Ítalíu)
Victor Osimhen (26), framherji Napoli, hefur samþykkt samningstilboð frá sádi-arabíska félaginu Al Hilal. (Sky)
Tyrkneska félagið Fenerbahce er komið í baráttuna við Galatasaray um þýska vængmanninn Leroy Sane (29). Sane hefur ekki enn samþykkt nýtt samningstilboð hjá Bayern og verður því laus allra mála um mánaðamótin. (Sky Sports)
Bayern München hefur náð samkomulagi við Bayer Leverkusen um að fá Jonathan Tah (29) áður en samningur hans rennur út svo hann geti spilað á HM félagsliða. (Fabrizio Romano)
Arsenal er að ganga frá kaupum á spænska markverðinum Kepa Arrizabalaga (30) frá Chelsea með því að virkja 5 milljóna punda kaupákvæði í samningi hans. (Evening Standard)
Athugasemdir