
Steven Thompson, fyrrum landsliðsmaður Skotlands, segist hafa talsverðar áhyggjur af skoska landsliðinu eftir tapið gegn Íslandi á Hampden Park.
Skotland tapaði 1-3 gegn Íslandi í vináttulandsleik á föstudaginn.
Skotland tapaði 1-3 gegn Íslandi í vináttulandsleik á föstudaginn.
Lestu um leikinn: Norður-Írland 0 - 0 Ísland
„Það er ekki langt síðan talað var um að Steve Clarke landsliðsþjálfari gerði ekkert rangt. Þetta er tap á heimavelli gegn lakara landsliði en við eigum," segir Thompson sem starfar nú sem sparkspekingur í skoska sjónvarpinu.
„Frammistaða liðsins var afleit. Þegar við förum inn í undankeppnina þá verður svona frammistaða ekki liðin."
Andy Robertson, leikmaður Liverpool, er fyrirliði skoska landsliðsins og hann hafði þetta að segja beint eftir tapið gegn Íslandi:
„Ég tel að við vitum allir að þetta var alls ekki nægilega gott. Ég vil ekki segja of mikið, við þurfum að rýna í þessa frammistöðu og ræða saman í klefanum áður en við förum að fullyrða eitthvað. Íslenska liðið lék of auðveldlega í gegnum okkur og nýtti öll færin sín. Við sköpuðum færi en nýttum þau ekki," sagði Robertson.
Á þriðjudagskvöld mun Ísland leika annan vináttulandsleik, að þessu sinni gegn Norður-Írlandi í Belfast.
Athugasemdir