Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Tuchel ósáttur: Smeykur síðustu 20 mínúturnar
Tuchel tók við enska landsliðinu um áramótin.
Tuchel tók við enska landsliðinu um áramótin.
Mynd: EPA
Bellingham og Kane voru báðir í byrjunarliðinu í Andorra.
Bellingham og Kane voru báðir í byrjunarliðinu í Andorra.
Mynd: EPA
Thomas Tuchel gagnrýndi sína menn eftir 0-1 sigur á útivelli gegn smáþjóðinni Andorra í undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM í gær.

Englendingar voru talsvert sterkari aðilinn í leiknum en þeim tókst aðeins að skora eitt mark. Heimamenn í liði Andorra ógnuðu marki Englendinga lítið sem ekkert.

Harry Kane skoraði eina mark leiksins á 50. mínútu og bauluðu ensku áhorfendurnir þegar liðin gengu til búningsklefa í leikhlé í stöðunni 0-0. Ensku áhorfendurnir bauluðu aftur á sína menn eftir lokaflautið.

„Ég var sérstaklega smeykur síðustu 20 mínúturnar því mér líkaði ekki við hugarfarið hjá leikmönnum. Strákarnir voru alltof rólegir, það leit ekki út fyrir að þeir væru að spila keppnisleik til að komast á HM. Leikmennirnir tóku þessum leik ekki nógu alvarlega og það er vandamál," sagði Tuchel eftir sigurinn.

„Við lékum okkur að eldinum á síðustu mínútunum. Mér líkaði ekki hugarfarið hjá leikmönnum og líkamstjáningin var mjög slæm."

England var með boltann 83% af leiknum en leikmenn liðsins voru mikið að senda hann til hliðar án þess að finna opnanir á þéttum varnarmúr Andorra. Þeir færðu boltann ekki nógu hratt á milli kanta og komu flestar marktilraunir liðsins frá langt fyrir utan teig.

England spilar æfingalandsleik við Senegal á City Ground, heimavelli Nottingham Forest, á þriðjudaginn og býst Tuchel við betri frammistöðu þar.

„Við byrjuðum vel og vorum góðir fyrstu 20 til 25 mínúturnar. Við sköpuðum góð færi á þeim tíma en eftir það misstum við dampinn og hægðum á sóknarleiknum. Við fundum taktinn ekki aftur nema í smá stund í síðari hálfleik en það er ekki nógu gott.

„Við búumst við meiru frá okkur. Við þurfum að fara ofan í saumana á því sem fór úrskeiðis og standa okkur betur á þriðjudaginn."

Athugasemdir
banner
banner