Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leik FC Kobenhavn og KuPS Kuopio í undankeppni Evrópudeildarinnar 19. júlí, en leikurinn fer fram í Kaupmannahöfn.
Honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson.
Fjórði dómari leiksins verður Þóroddur Hjaltalín.
Fyrri leikur FCK og Kupoio fór fram í Finnlandi í gær en þar hafði Kaupmannahöfn betur 1-0.
Sigurvegarinn úr þessum leik mætir Stjörnunni eða Nomme Kalju í 2. umferðinni en Garðbæingar unnu fyrri leikinn 3-0 í gær og eru í mjög góðri stöðu.
Athugasemdir