Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   þri 19. maí 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Guerreiro og Goretzka kvaddir - Falir á frjálsri sölu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
FC Bayern lék síðasta leik deildartímabilsins um helgina og nýtti tækifærið til að kveðja leikmenn liðsins sem eru á förum í sumar.

Senegalski framherjinn Nicolas Jackson, sem leikur með Bayern á láni út tímabilið, var kvaddur ásamt Raphaël Guerreiro og Leon Goretzka sem hafa verið lengur hjá félaginu.

32 ára Guerreiro kveður Bayern eftir þrjú ár og 31 árs Goretzka kveður stórveldið eftir átta ár.

Þeir verða báðir falir á frjálsri sölu í sumar og eru mörg félög áhugasöm um að reyna að tryggja sér þjónustu þeirra.

Benfica og Juventus hafa verið sterklega orðuð við vængbakvörðinn Guerreiro á meðan talsvert meiri áhugi er á miðjumanninum Goretzka.

AC Milan, Inter, Napoli, Manchester United, Arsenal, Tottenham, Bayer Leverkusen og Atlético Madrid eru meðal félaga sem hafa verið nefnd til sögunnar þegar kemur að Goretzka sem getur valið á milli félagsliða í sumar. Hann er með 69 landsleiki að baki fyrir Þýskaland og fer að öllum líkindum með á HM í sumar.


Slapp
banner
banner