Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   mán 18. maí 2026 12:00
Kári Snorrason
KR endurheimtir stóra pósta fyrir Blikaleikinn - Aron Þórður frá til lengri tíma
Óskar býst við Ástbirni, Finni Tómasi og Arnóri Ingva gegn Breiðabliki á föstudag.
Óskar býst við Ástbirni, Finni Tómasi og Arnóri Ingva gegn Breiðabliki á föstudag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron fer í myndatöku á morgun.
Aron fer í myndatöku á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR var án lykilmanna er liðið gerði 2-2 jafntefli við Fram á Meistaravöllum í gær.

Arnór Ingvi Traustason, Finnur Tómas Pálmason, Ástbjörn Þórðarson, Stefán Árni Geirsson og Michael Akoto voru allir utan hóps.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, sagði í viðtali við Fótbolta.net í gær búast við að endurheimta Finn, Arnór og Ástbjörn fyrir leik liðsins gegn Breiðabliki á föstudag.

„Ef ég er ekki að lesa vitlaust í þetta þá held ég að Finnur, Arnór og Michael verða klárir á æfingu á morgun. Ég held að það sé ekki langt í Ástbjörn. Ég veit ekki almennilega stöðuna á Stefáni Árna en þessir þrír sem hafa verið að spila mest í sumar þeir ættu að vera klárir fyrir Blikaleikinn,“ sagði Óskar Hrafn í gær.

Lítur ekki vel út með Aron
Aron Þórður Albertsson hefur ekkert komið við sögu á tímabilinu en hann er að glíma við nárameiðsli.

„Hann fer í myndatöku á þriðjudaginn, kannað hvort að þetta sé kviðslit eða verra.“

Hann verður þá lengi frá?
„Það lítur þannig út. Hann hefur ekkert lagst í einn og hálfan mánuð. Við söknum hans, því miður lítur það þannig út að þetta gæti orðið smá tími fyrir hann á hliðarlínunni,“ sagði Óskar að lokum.
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Slapp
banner