Callum McFarlane, bráðabirgðastjóri Chelsea, segist mjög spenntur yfir ráðningu félagsins á Xabi Alonso.
„Ég held að allir hjá félaginu séu spenntir. Þetta er frábær þjálfari og hefur átt mjög góðan feril hingað til. Unnið stóra titla, átti frábæran leikmannaferil. Þetta er virkilega spennandi ráðning hjá félaginu,“ sagði McFarlane á blaðamannafundi áðan.

McFarlane sagðist þó ekki vera búinn að huga að því hvort að hann verði hluti af teyminu á næsta tímabili. Blaðamaður BBC fullyrðir þó að hann verði hluti af teyminu á næsta tímabili.
McFarlane viðurkenndi þó að hann væri búinn að vera í sambandi við Alonso en neitaði að gefa upp hvað fór á milli þeirra.
Mæta Tottenham á morgun
Chelsea mætir erkifjendunum í Tottenham á morgun sem er í harðri botnbaráttu.
„Við erum mjög, mjög einbeittir. Við þurfum að vinna næstu tvo leiki til að gefa okkur besta möguleikann á að enda eins ofarlega í deildinni og mögulegt er og komast í Evrópukeppni.
Það er það eina sem við einbeitum okkur að, að vinna vinnuna okkar og sýna þá frammistöðu sem við þurfum til að vera gott lið,“ sagði McFarlane.
Romeo Lavia fékk högg fyrir úrslitaleikinn og var hann því ekki með. Mamadou Sarr og Benoit Badiashile eru báðir heilir eftir meiðsli. McFarlane sagði beðið eftir stöðunni á Joao Pedro og Reece James.