Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   þri 19. maí 2026 00:05
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Arsenal og Burnley: Declan Rice bestur
Mynd: EPA
Mynd: Burnley
Sky Sports gaf leikmönnum einkunnir eftir viðureign Arsenal gegn Burnley fyrr í kvöld.

Arsenal var talsvert sterkara liðið en endaði á að vinna nauman 1-0 sigur. Declan Rice lék í varnarsinnuðu hlutverki á miðjunni til að gefa Eberechi Eze og Martin Ödegaard meira frelsi í sóknarleiknum og stóð sig frábærlega.

Hann var gríðarlega oft réttur maður á réttum stað til að hreinsa upp seinni bolta á vallarhelmingi Arsenal og átti stóran þátt í því að heimamenn stjórnuðu takti leiksins.

Rice fær 8 í einkunn hjá Sky alveg eins og liðsfélagar hans Gabriel Magalhaes, Bukayo Saka og Kai Havertz sem skoraði eina mark leiksins og var svo heppinn að fá ekki rautt spjald.

Rice er titlaður sem maður leiksins í einkunnagjöfinni á meðan Zian Flemming var versti leikmaður vallarins með 5 í einkunn.

Arsenal: Raya (7); Mosquera (7), Saliba (7), Gabriel (8), Calafiori (7); Rice (8), Eze (7), Odegaard (7); Saka (8), Havertz (8), Trossard (7)
Varamenn: Gyokeres (6), Hincapie (6), Lewis-Skelly (6)

Burnley: Weiss (7); Walker (7), Tuanzebe (6), Esteve (6), Pires (6); Ugochukwu (6), Florentino (6), Mejbri (6); Tchaouna (7), Flemming (5), Anthony (6)
Varamenn: Amdouni (6), Laurent (6), Ward-Prowse (6)
Slapp
banner
banner
banner