Miðjumaðurinn Andri Fannar Baldursson og félagar hans í Kasimpasa unnu tyrknesku meistarana í Galatasaray, 1-0, í lokaumferð deildarinnar í kvöld.
Galatasaray var búið að tryggja sér titilinn fyrir lokaumferðina á meðan Kasimpasa var í fallbaráttu.
Kasimpasa þurfti því sigurinn og var það pólski framherjinn Adrian Benedyczak sem trygði það með frábæru vippumarki á 27. mínútu leiksins.
Andri lék allan leikinn fyrir Kasimpasa sem hafnaði í 13. sæti með 35 stig, þremur fyrir ofan fallsæti.
Lay lay lay layyy... Ooo Kas?mpa?a! ????????#Kas?mpa?a pic.twitter.com/mQWLbUXN1r
— Kas?mpa?a (@kasimpasa) May 17, 2026

