Lionel Messi skoraði eitt mark og skapaði annað á laglegan hátt þegar Inter Miami vann 2-0 sigur gegn Portland Timbers í bandarísku MLS-deildinni.
Messi skoraði tólfta mark sitt á tímabilinu með kraftmiklu skoti með vinstri og lagði svo upp mark fyrir German Berterame.
Messi skoraði tólfta mark sitt á tímabilinu með kraftmiklu skoti með vinstri og lagði svo upp mark fyrir German Berterame.
Hinn 38 ára gamli Messi er með fimm mörk og sex stoðsendingar í síðustu fjórum leikjum.
Þetta var fyrsti sigurleikur Inter Miami á nýjum leikvangi, hinum 27 þúsund manna Nu leikvangi sem félagið tók í notkun í apríl. Liðið hafði gert þrjú jafntefli og tapað einum leik í fyrstu fjórum leikjunum á vellinum.
Inter Miami er í öðru sæti í austurdeildinni með 28 stig í 14 leikjum, tveimur stigum á eftir Nashville. Liðið vann MLS titilinn á síðasta tímabili og reynir að verja hann.




