Þátttaka franska sóknarmannsins Ousmane Dembele í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu gæti verið í hættu eftir að kappinn meiddist í 2-1 tapi Paris Saint-Germain gegn nágrönnunum í Paris FC í lokaumferð frönsku deildarinnar í gær.
Dembele, sem var kjörinn besti leikmaður heims fyrir níu mánuðum síðan, byrjaði hjá PSG, en bað um skiptingu þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum.
Hann gekk ásamt læknateyminu inn í búningsklefann þar sem hann var skoðaður bak og fyrir.
Canal+ í Frakklandi telur að meiðsli Dembele séu líklega ekki alvarleg og að hann ætti að vera klár fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar, en endanleg niðurstaða liggur ekki fyrir.
Úrslitaleikurinn er gegn Arsenal þann 30. maí en spilað er á Puskas-leikvanginum í Búdapest.
Luis Enrique, þjálfari PSG, er ekki sá eini sem svitnar við það að bíða eftir fréttum af Dembele en Didier Deschamps, þjálfari Frakka, gerir það líka, enda aðeins nokkrar vikur þar til HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó fer af stað.

