Það komu þónokkrir Íslendingar við sögu í fyrstu leikjum dagsins víðsvegar um Evrópu þar sem keppt var í danska, sænska, hollenska og skoska boltanum.
Í Danmörku var Daníel Freyr Kristjánsson í byrjunarliði Fredericia í þýðingarlausum 4-1 stórsigri gegn Silkeborg þar sem Fredericia var þegar fallið fyrir upphafsflautið. Liðið endar með 34 stig eftir 32 umferðir, einu stigi frá öruggu sæti.
Viktor Bjarki Daðason er meiddur og missti af stórsigri FC Kaupmannahafnar á meðan Rúnar Alex Rúnarsson sat á bekknum. FCK vann 5-0 gegn Randers og endar í sjöunda sæti deildarinnar.
Adam Ingi Benediktsson varði þá markið í sigri AB sem er aðeins einu stigi frá því að tryggja sér titilinn í þriðju efstu deild í Danmörku. AB fer því þægilega upp um deild og leikur í næstefstu deild í haust.
Lokaumferð hollenska boltans fór fram og komu nokkrir Íslendingar við sögu þar. Alfons Sampsted og Stefán Ingi Sigurðarson voru í byrjunarliði Go Ahead Eagles sem tapaði fyrir NEC Nijmegen. Stefán fékk aðeins að spila fyrri hálfleikinn áður en Alfons var kippt af velli á 70. mínútu.
Willum Þór Willumsson var ónotaður varamaður í liði Nijmegen sem tryggði sér sæti í undankeppni Meistaradeildarinnar með þessum sigri. Nijmegen stökk yfir FC Twente á stöðutöflunni til að stela þriðja sætinu.
Kristian Nökkvi Hlynsson var í byrjunarliði Twente sem steinlá á útivelli gegn langbesta liði hollensku deildarinnar, PSV Eindhoven. PSV var löngu búið að tryggja sér Hollandsmeistaratitilinn og vann 5-1 í dag. Twente fer því í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Brynjólfur Andersen Willumsson var þá ónotaður varamaður í sigri Groningen sem á framundan umspilsleiki um sæti í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Nökkvi Þeyr Þórisson var ekki í hóp hjá Telstar sem bjargaði sér frá falli með að ná í 10 stig úr síðustu 4 umferðum tímabilsins.
Í Skotlandi var 19 ára Kjartan Már Kjartansson í byrjunarliði Aberdeen sem tapaði 3-2 gegn Dundee FC. Kjartan lék fyrstu 76 mínúturnar og endar Aberdeen í níunda sæti með 40 stig úr 38 umferðum.
Að lokum er komið að sænska boltanum þar sem Daníel Tristan Guðjohnsen var í byrjunarliði Malmö sem steinlá gegn Hammarby. Arnór Sigurðsson var ónotaður varamaður og var þetta þriðji tapleikurinn í röð hjá Malmö sem er með 10 stig eftir 8 umferðir.
Hlynur Freyr Karlsson var ónotaður varamaður er Brommapojkarna kom sér upp í 11 stig með miklum baráttusigri á heimavelli. Markvörðurinn Leo Cavallius var maður leiksins á milli stanga heimamanna.
Fredericia 4 - 1 Silkeborg
FCK 5 - 0 Randers
Vendsyssel 1 - 2 AB
Nijmegen 2 - 1 G.A. Eagles
PSV 5 - 1 Twente
Heracles 1 - 2 Groningen
Volendam 1 - 2 Telstar
Dundee FC 3 - 2 Aberdeen
Hammarby 4 - 1 Malmö
Brommapojkarna 1 - 0 Kalmar



