Portúgalinn Cristiano Ronaldo er einn af fimm leikmönnum sem tilnefndir eru sem besti leikmaður sádi-arabísku deildarinnar þetta tímabilið.
Ronaldo, sem er fertugur, er með 26 mörk á tímabilinu og sjö sinnum verið valinn maður leiksins í deildinni.
Hann hefur átt stóran þátt í velgengni Al Nassr sem er einum sigri frá því að vinna deildina.
Samkvæmt sádi-arabískum miðlum er líklegastur til að hreppa verðlaunin, en sá næsti á eftir honum er samlandi og liðsfélagi hans, Joao Felix, sem hefur hjálpað Al Nassr að komast á næsta stig.
Ruben Neves, Julian Quinones og Ivan Toney eru einnig tilnefndir, en Toney er markahæstur með 32 mörk og þá kemur Quinones næstur á eftir honum með 29 mörk.
The #RoshnSaudiLeague Player of the Season 2025/26 nominees are here! ????
— Roshn Saudi League (@SPL_EN) May 17, 2026
????? Vote here: https://t.co/R5JqjPVOOU
Presented by @RoshnKSA pic.twitter.com/uyv2TrqM1d


