Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   mán 18. maí 2026 16:33
Elvar Geir Magnússon
Yamal missir af byrjun HM
Mynd: EPA
Stórstjarnan Lamine Yamal, leikmaður Barcelona, mun væntanlega missa af fyrsta leik Spánverja á HM. Liðið mætir Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik sínum 15. júní.

Þessi átján ára leikmaður er meiddur á læri og er líka óvissa um hvort hann verði með gegn Sádi-Arabíu í öðrum leik 21. júní. Fimm dögum síðar mun Spánn svo etja kappi við Úrúgvæ í lokaumferð riðlakeppninnar.

Yamal meiddist þegar hann tók vítaspyrnu gegn Espanyol í síðasta mánuði.

Spænski landsliðshópurinn verður opinberaður næsta mánudag.
Slapp
banner
banner