Frá vinstri: Gunnar Felixson, Sveinn Jónsson, Stefán Aðalsteinsson, Símon Unndórsson, Kristján Hilmarsson, Halldór Pálsson, Gunnar Ingimundarson, Guðjón B. Hilmarsson, Gísli Jón Magnússon, Ellert Már Jónsson, Björn Magnússon, Björn Gunnlaugsson og Árni Guðmundsson.
Fyrir leik KR og Fram á Meistaravöllum í gær voru Íslandsmeistarar KR í 5. flokki árið 1968 heiðraðir og fengu loks medalíur eftir 58 ára bið.
Kristján Jónsson blaðamaður vakti athygli á afhendingunni í Morgunblaðinu í síðustu viku.
Í greininni kom fram að KR-ingarnir hefðu ekki fengið verðlaunapening á sínum tíma þar sem það tíðkaðist ekki að KSÍ gæfi medalíur í yngstu aldursflokkunum. Bikar fyrir liðið var látinn nægja.
Hafliði Breiðfjörð var á vellinum og tók myndir af kempunum þegar þeir fengu loks verðlaunapeninginn um hálsinn.

KR goðsagnirnar Sveinn Jónsson og Gunnar Felixson afhentu verðlaunin.