Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   mán 18. maí 2026 23:50
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Smygluðu risastórum borða í fögnuð FC Bayern
Mynd: EPA
Mynd: EPA
FC Bayern fagnaði Þýskalandsmeistaratitlum bæði í karla- og kvennaflokki um helgina og fjölmenntu stuðningsmenn félagsins á götur München.

Það voru þó einhverjir stuðningsmenn nágrannaliðsins 1860 Munchen sem blönduðu sér við fólksfjöldann og náðu að láta risastóran borða ganga manna á milli í fögnuðinum.

Borðinn virðist í fyrstu vera saklaus en þegar hann er skoðaður betur kemur ýmislegt í ljós. Á borðanum stendur: 'FC Bauern Hurensöhne' og í miðju merki Bayern má sjá ártalið 1860 skrifað með svörtum túss.

Þýðingin á þessu orðagríni er 'FC Bændur Tíkarsynir' en upprunalegur borði á einfaldlega að segja 'FC Bayern München'.

Markvörðurinn goðsagnakenndi Manuel Neuer var með þeim fyrstu til að koma auga á borðann og lét strax skipun ganga um að taka hann niður.

Neuer er fyrirliði karlaliðs Bayern á meðan Glódís Perla Viggósdóttir er fyrirliði kvennaliðsins.


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 34 28 5 1 122 36 +86 89
2 Dortmund 34 22 7 5 70 34 +36 73
3 RB Leipzig 34 20 5 9 66 47 +19 65
4 Stuttgart 34 18 8 8 71 49 +22 62
5 Hoffenheim 34 18 7 9 65 52 +13 61
6 Leverkusen 34 17 8 9 68 47 +21 59
7 Freiburg 34 13 8 13 51 57 -6 47
8 Frankfurt 34 11 11 12 61 65 -4 44
9 Augsburg 34 12 7 15 45 61 -16 43
10 Mainz 34 10 10 14 44 53 -9 40
11 Union Berlin 34 10 9 15 44 58 -14 39
12 Gladbach 34 9 11 14 42 53 -11 38
13 Hamburger 34 9 11 14 40 54 -14 38
14 Köln 34 7 11 16 49 63 -14 32
15 Werder 34 8 8 18 37 60 -23 32
16 Wolfsburg 34 7 8 19 45 69 -24 29
17 Heidenheim 34 6 8 20 41 72 -31 26
18 St. Pauli 34 6 8 20 29 60 -31 26
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - konur
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern W 26 24 2 0 90 9 +81 74
2 Wolfsburg W 26 18 4 4 72 38 +34 58
3 Eintracht Frankfurt W 26 16 3 7 65 43 +22 51
4 Hoffenheim W 26 14 4 8 48 30 +18 46
5 Bayer W 26 15 1 10 46 36 +10 46
6 Werder W 26 12 7 7 42 36 +6 43
7 Koln W 26 11 4 11 36 37 -1 37
8 Freiburg W 26 10 4 12 44 46 -2 34
9 Union Berlin W 26 8 6 12 42 51 -9 30
10 RB Leipzig W 26 7 7 12 39 48 -9 28
11 Nurnberg W 26 6 4 16 33 61 -28 22
12 Hamburger W 26 4 6 16 26 57 -31 18
13 Essen W 26 3 7 16 22 63 -41 16
14 Carl Zeiss Jena W 26 2 5 19 22 72 -50 11
Slapp
banner