Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
   sun 17. maí 2026 16:14
Ívan Guðjón Baldursson
England: Evrópubaráttuliðin höltruðu - Sunderland í séns
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fjórum leikjum var að ljúka í ensku úrvalsdeildinni þar sem fimm evrópubaráttulið mættu til leiks og misstigu fjögur þeirra sig.

Brighton tapaði á útivelli gegn Leeds United á dramatískan hátt eftir sigurmark frá Dominic Calvert-Lewin seint í uppbótartíma. Calvert-Lewin komst inn í herfilega sendingu frá Jan Paul van Hecke og skoraði í autt mark eftir að hafa verið á undan Bart Verbruggen til boltans.

Brighton var talsvert sterkara liðið í Leeds og fékk mikið af færum til að setja boltann í netið, en fann ekki leið framhjá Karl Darlow sem átti flottan leik á milli stanganna. Lokatölur urðu því 1-0 fyrir Leeds sem er gríðarlega svekkjandi fyrir Brighton. Leeds siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar en Brighton missir endanlega af mögulegu meistaradeildarsæti með þessu tapi.

Brighton situr áfram í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar sem er jafnframt síðasta sætið sem veitir þátttökurétt í Evrópudeildina í haust. Liðið er aðeins einu stigi fyrir ofan Brentford eftir að lærlingar Keith Andrews jöfnuðu í tvígang til að bjarga stigi á heimavelli gegn Crystal Palace.

Ismaila Sarr skoraði úr vítaspyrnu snemma leiks til að ná forystunni fyrir Palace og gerði Dango Ouattara jöfnunarmark fyrir heimamenn undir lok fyrri hálfleiks.

Adam Wharton endurheimti forystuna fyrir Palace í síðari hálfleik en Brentford var talsvert betra liðið og komst nokkrum sinnum nálægt því að gera jöfnunarmark þar til á lokamínútunum þegar Ouattara skoraði sitt annað mark til að bjarga stigi.

Lokatölur urðu 2-2 og er Brentford aðeins einu stigi frá sæti í Evrópudeildinni fyrir lokaumferðina. Brentford heimsækir þó stórveldi Liverpool og þarf helst á sigri að halda þar ef liðið vill ekki missa af þátttöku í Evrópu á næstu leiktíð.

Brentford situr í áttunda sæti, sem veitir þátttökurétt í Sambandsdeildina, en er með Chelsea og Sunderland andandi ofan í hálsmálið á sér. Sunderland lagði Everton að velli í dag.

Heimamenn í liði Everton voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og skoraði Merlin Röhl til að taka forystuna. Síðari hálfleikurinn var nokkuð jafn en gestirnir frá Sunderland nýttu færin sín til hins ítrasta og stóðu uppi sem sigurvegarar.

Brian Brobbey, Enzo Le Fée og Wilson Isidor sáu um markaskorunina. Sunderland er einu stigi frá Brentford eftir þennan sigur sem gerir út um allar raunhæfar vonir Everton um að komast í Evrópu.

Að lokum gerði Fulham ótrúlega svekkjandi jafntefli við fallið lið Wolves og missir því af Evrópu alveg eins og Everton.

Það ríkti jafnræði með liðunum er þau mættust í Wolverhampton og náðu heimamenn forystunni í fyrri hálfleik áður en Antonee Robinson jafnaði af vítapunktinum.

Lærlingar Marco Silva í liði Fulham voru furðulega slakir í síðari hálfleik og í raun heppnir að hafa ekki tapað gegn Úlfunum sem voru eingöngu að spila upp á stoltið.

Leeds 1 - 0 Brighton
1-0 Dominic Calvert-Lewin ('96 )

Brentford 2 - 2 Crystal Palace
0-1 Ismaila Sarr ('6 , víti)
1-1 Dango Ouattara ('40 )
1-2 Adam Wharton ('52 )
2-2 Dango Ouattara ('88 )

Everton 1 - 3 Sunderland
1-0 Merlin Rohl ('43 )
1-1 Brian Brobbey ('59 )
1-2 Enzo Le Fee ('81 )
1-3 Wilson Isidor ('91 )

Wolves 1 - 1 Fulham
1-0 Mateus Mane ('25 )
1-1 Antonee Robinson ('45+3, víti)
Slapp
banner
banner
banner