Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   þri 19. maí 2026 00:12
Ívan Guðjón Baldursson
5. deild: Góður endurkomusigur hjá RB
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KM 1 - 3 RB
1-0 Karabo Mgiba ('3)
1-1 Helgi Bergsson ('15)
1-2 Leonardo Norbert Mitruscsak ('30, víti)
1-3 Ágúst Þór Ægisson ('80)

Það fór einn leikur fram í 5. deildinni fyrr í kvöld þar sem KM náði forystunni á heimavelli gegn RB.

Karabo Mgiba skoraði á þriðju mínútu en Helgi Bergsson jafnaði tólf mínútum síðar.

Leonardo Mitruscsak tók forystuna fyrir gestina úr Reykjanesbæ með marki úr vítaspyrnu svo staðan var 1-2 í leikhlé.

Hvorugu liði tókst að bæta marki við í síðari hálfleik fyrr en á 80. mínútu, þegar Ágúst Þór Ægisson innsiglaði sigur gestanna. Lokatölur 1-3.

RB er með fjögur stig eftir tvær fyrstu umferðir sumarsins. KM er með þrjú stig.
Slapp
banner
banner
banner