Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
   sun 17. maí 2026 17:08
Ívan Guðjón Baldursson
Fyrsti sigur Norrköping - Andrea Rut meiddist
Kvenaboltinn
Mynd: Köln
Mynd: Anderlecht
Íslenskar fótboltakonur komu við sögu í ýmsum deildum víðsvegar um Evrópu í dag.

Sandra María Jessen var á sínum stað í byrjunarliði Köln sem vann þægilega í þýsku deildinni og endar um miðja deild með 37 stig eftir 26 umferðir.

Ingibjörg Sigurðardóttir var að sama skapi í byrjunarliði Freiburg sem gerði jaftnefli við Essen og endar með 34 stig.

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir var í byrjunarliðinu hjá RB Leipzig sem gerði markalaust jafntefli og endar tímabilið með 28 stig.

Glódís Perla Viggósdóttir var ónotaður varamaður í langbesta liði þýsku deildarinnar, FC Bayern, sem er löngu búið að tryggja sér Þýskalandsmeistaratitilinn.

Í sænska boltanum kom Sigdís Eva Bárðardóttir við í þægilegum sigri hjá Norrköping sem lagði Brommapojkarna að velli. Þetta er fyrsti sigur Norrköping á deildartímabilinu og er liðið með 6 stig eftir 6 umferðir.

Heiða Ragney Viðarsdóttir kom inn af bekknum í sigri Eskilstuna sem stekkur uppfyrir Kristianstad og fer í þriðja sætið með 12 stig eftir 5 umferðir og að lokum var María Catharína Ólafsdóttir Grós í byrjunarliði Djurgården sem tapaði fyrir Vittsjö. Djurgården er með 4 stig eftir 6 umferðir.

Að lokum var Andrea Rut Bjarnadóttir í byrjunarliði Anderlecht en þurfti að fara meidd af velli eftir 43 mínútur. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir kom inn af bekknum fyrir Andreu.

Anderlecht gerði 1-1 jafntefli við Standard Liége og endar því tímabilið í öðru sæti belgísku deildarinnar. Framundan er þó bikarúrslitaleikur við Zulte Waregem 30. maí.

Jena 0 - 3 Köln

Essen 1 - 1 Freiburg

Hoffenheim 0 - 0 Leipzig

Hamburger SV 0 - 1 FC Bayern

Norrköping 3 - 0 Brommapojkarna

Eskilstuna 1 - 0 Uppsala

Vittsjö 1 - 0 Djurgarden

Standard Liege 1 - 1 Anderlecht

Slapp
banner
banner
banner