Hér er slúðurpakki dagsins mættur. Leikmaður Dortmund er orðaður við ensk stórlið, Real Madrid vill varnarmann frá City og hollenskur bakvörður er skotmark Liverpool.
Manchester United og Chelsea hafa bæði áhuga á þýska framherjanum Karim Adeyemi (24) í sumar en Borussia Dortmund vill selja hann fyrir rétta upphæð. (Teamtalk)
Levi Colwill (23) er ekki í viðræðum við Chelsea um endurbættan samning en viðræður við enska miðvörðinn gætu farið í gang í sumar. (Sky Sports)
Everton og Aston Villa hafa áhuga á danska framherjanum William Osula (22) hjá Newcastle. (The I)
Hollenski miðvörðurinn Lutsharel Geertruida (25), sem er á láni hjá Sunderland frá RB Leipzig, vill halda áfram að spila í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Everton hefur áhuga. (Football Insider)
Þýski miðvörðurinn Antonio Rudiger (33) mun skrifa undir nýjan eins árs samning hjá Real Madrid. Félagið hefur áhuga á að fá króatíska miðvörðinn Josko Gvardiol (24) frá Manchester City. (AS)
Markvörðurinn Tom Heaton (40) mun skrifa undir eins árs framlengingu við Manchester United. (Mirror)
Jose Mourinho vill fá enska framherjann Marcus Rashford (28) þegar hann tekur við Real Madrid. Rashford er á láni hjá Barcelona frá Manchester United. (Sport)
Liverpool hyggst reyna að fá hollenska bakvörðinn Denzel Dumfries (30) frá Inter. (Football Insider)




