Kai Havertz skoraði eina mark leiksins í mikilvægum sigri Arsenal gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Sigurinn færir Arsenal aðeins einum sigri frá því að tryggja sér sinn fyrsta Englandsmeistaratitil síðan 2004.
Havertz skoraði markið í fyrri hálfleik en í þeim seinni varð hann næstum að skúrkinum þegar hann fór í nokkuð tilgangslausa og hættulega tæklingu sem að margra mati verðskuldaði rautt spjald.
Mike Jackson, þjálfari Burnley, furðaði sig á því í viðtali að leikslokum að Havertz hafi aðeins fengið gult spjald fyrir tæklinguna glæfralegu.
18.05.2026 22:21
Jackson: Skil ekki hvernig hann fékk bara gult
Fótboltasérfræðingarnir Gary Neville, Jamie Carragher og Robert Green voru sammála Jackson, en Patrick Vieira fyrrum fyrirliði Arsenal var sammála dómaranum.
„Þetta er grimmt brot hjá Havertz, hann er kílómetrum frá boltanum. Mér líst ekkert á þessa tæklingu. Hann fer alltof hátt og í fótinn sem leikmaðurinn stendur í. VAR átti að skerast í leikinn, hann er heppinn strákur," sagði Neville í útsendingu Sky Sports.
Rob Green, fyrrum landsliðsmarkvörður Englands, var í útsendingu BBC frá leiknum í útvarpi og tók undir orð Neville.
„Takkarnir eru uppi, báðar lappir í loftinu og hátt uppi. Það er lítið mál að finna samskonar atvik þar sem var gefið rautt spjald. Ef þið spyrjið fótboltamenn hvaða tæklingum ætti að eyða úr íþróttinni þá er þetta fullkomið dæmi," sagði Green.
Jamie Carragher tók undir orð Neville hjá Sky og nefndi þá staðreynd að Arsenal er ekki búið að fá eitt rautt spjald á tímabilinu.
„Þeir eru mjög heppnir. Þetta eru núna tvær stórar ákvarðanir sem falla með þeim á einum mánuði," sagði Carragher og átti þá við atvik úr viðureign Arsenal gegn Manchester City í apríl þegar brasilíski miðvörðurinn Gabriel Magalhaes var stálheppinn að fá ekki rautt spjald þegar hann ýtti enni sínu að enninu hans Erling Haaland.
„Þetta er tækling að aftan frá og maður sér í takkana en dómarinn tók rétta ákvörðun. Það var ekki nógu mikill kraftur í tæklingunni til að verðskulda rautt spjald," sagði Vieira.
18.05.2026 22:08
Sjáðu atvikin: Havertz slapp við rautt - Átti Arsenal að fá víti?



