Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   þri 19. maí 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Neville og Carragher völdu lið og leikmenn tímabilsins
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: Skjáskot
Mynd: Brentford
Mynd: EPA
Fótboltasérfræðingarnir skemmtilegu Gary Neville og Jamie Carragher eru búnir að velja draumalið og besta leikmann enska úrvalsdeildartímabilsins.

Liðsvalið hjá þeim samstarfsfélögunum er afar svipað í ár þar sem þeir eru með níu af sömu leikmönnunum. Eini munurinn er að Neville valdi Jurriën Timber og Igor Thiago í sitt lið á meðan Carragher kaus frekar Matheus Nunes og Jérémy Doku.

„Ég var aldrei í vafa með hægri bakvarðarstöðuna, Timber er langbesti hægri bakvörður deildarinnar. Hann getur gert allt. Erfiðasta valið var miðjan því mig langaði að velja Elliot Anderson en ég kaus frekar Bernardo Silva," sagði Neville um sitt liðsval.

„Ég valdi Nunes og O'Reilly í bakvarðarstöðurnar útaf því að þegar ég horfði á bakverðina hjá Man City í byrjun tímabils hafði ég enga trú á því að þeir gætu unnið einhverja titla eða barist um úrvalsdeildina. Nunes er miðjumaður að upplagi en hann er stórkostlegur í hægri bakvarðarstöðunni og ég vel hann framyfir Timber sem hefur verið að glíma við meiðsli. Svo hefur Doku verið stórkostlegur á tímabilinu," sagði Carragher.

Neville valdi Bruno Fernandes sem besta leikmann tímabilsins en Carragher var ósammála og valdi Declan Rice.

Þeir voru sammála um að Nico O'Reilly verðskuldaði titilinn besti ungi leikmaður tímabilsins og að Mikel Arteta væri besti stjóri tímabilsins.

Neville taldi Granit Xhaka vera bestu kaup tímabilsins á meðan Carragher valdi Rayan Cherki.

Nunes og Doku voru valdir sem leikmennirnir sem bættu sig mest á tímabilinu og voru Unai Emery og Andoni Iraola heiðraðir fyrir framúrskarandi þjálfunarárangur.

Neville og Carragher voru sammála um að Brentford hafi verið liðið sem kom mest á óvart á tímabilinu á meðan Tottenham og Liverpool ollu mestu vonbrigðum.

Dominik Szoboszlai og Harry Wilson skoruðu mörk tímabilsins og voru tveir sigurleikir hjá Manchester United valdir sem bestu leikir tímabilsins, 2-0 sigur heima gegn Man City og 2-3 sigur úti gegn Arsenal.

Draumalið Neville:
David Raya (Arsenal)
Jurrien Timber (Arsenal)
William Saliba (Arsenal)
Gabriel Magalhaes (Arsenal)
Nico O'Reilly (Man City)
Declan Rice (Arsenal)
Bruno Fernandes (Man Utd)
Bernardo Silva (Man City)
Antoine Semenyo (Man City)
Igor Thiago (Brentford)
Erling Haaland (Man City)

Draumalið Carragher:
David Raya (Arsenal)
Matheus Nunes (Man City)
William Saliba (Arsenal)
Gabriel Magalhaes (Arsenal)
Nico O'Reilly (Man City)
Declan Rice (Arsenal)
Bruno Fernandes (Man Utd)
Bernardo Silva (Man City)
Antoine Semenyo (Man City)
Jeremy Doku (Man City)
Erling Haaland (Man City)
Slapp
banner