Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
banner
   fim 23. júlí 2020 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Helgi Sig: Hleypum þeim á óskiljanlegan hátt inn í leikinn
Lengjudeildin
Helgi Sigurðsson.
Helgi Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Maður er ekki sáttur við þetta," sagði Helgi Sigurðsson, þjálfari ÍBV, eftir 3-3 jafntefli við Vestra í Lengjudeild karla.

Lestu um leikinn: Vestri 3 -  3 ÍBV

„Við erum komnir í góða stöðu í fyrri hálfleik en hleypum þeim aftur á óskiljanlegan hátt inn í þennan leik. Þeir jafna fyrir hálfleik og það eru hlutir sem eiga ekki að geta gerst hjá svona reyndu liði. En það gerðist."

„Síðan komast þeir yfir og við þurftum að sýna karakter og koma til baka, og við gerum það. Það var mikill karakter í liðinu en að sama skapi er maður ekki sáttur við að hleypa þeim inn í leikinn í stöðunni 2-0."

Þessi lið voru tvö bestu varnarlið deildarinnar fyrir leikinn, en þegar í leikinn var komið þá opnuðust flóðgáttirnar. „Bæði lið fá á sig þrjú mörk en þetta var örugglega stórskemmtilegur leikur áhorfenda. Þessi leikur var einn með öllu og það var jákvætt, en það er ekki jákvætt að fá á sig þrjú mörk."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan. ÍBV hefur gert þrjú jafntefli í röð en Helgi segir það ekkert áhyggjuefni.
Athugasemdir
banner
banner