Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 25. júní 2020 15:15
Magnús Már Einarsson
Neville: Þú getur ekki treyst vörninni hjá Arsenal
Mikel Arteta, stjóri Arsenal.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal.
Mynd: Getty Images
Gary Neville, sérfræðingur Sky, segir að Mikel Arteta stjóri Arsenal verði að styrkja varnarleikinn í sumar til að ná lengra með liðið.

Arsenal hefu tapað fyrstu tveimur leikjum sínum eftir kórónaveirufaraldurinn, gegn Manchester City og gegn Brighton.

„Þú getur ekki treyst á Arsenal og þannig hefur þetta verið í nokkur ár. Við höfum allir sagt þetta. Skipulagið hjá Mikel Arteta er betra en það var áður en einstaklingarnir geta allaf valdið vonbrigðum," sagði Neville.

„Það skiptir ekki miklu máli hversu vel þú æfir taktíkina, ef þú lendir í vandræðum ef einn af varnarmönnunum gerir mistök eins og við sáum gegn Manchester City og Brighton, þá er þér refsað."
Athugasemdir
banner
banner