Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. júlí 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Ronaldo: Þetta var fyrir stuðningsmennina
Mynd: Getty Images
„Ég er ánægður með annan meistaratitilinn í röð og að halda áfram að skrifa söguna hjá þessu frábæra félagi," sagði Cristiano Ronaldo eftir að Juventus tryggði sér ítalska meistaratitilinn í gærkvöldi.

Juventus varð ítalskur meistari níunda árið í röð í gær en liðið er með sjö stiga forskot á Inter þegar tvær umferðir eru eftir.

„Ég tileinka öllum stuðningsmönnum Juventus titilinn, sérstaklega þeim sem hafa þurft að þjást í heimsfaraldrinum sem hefur komið okkur öllum í opna skjöldu og umbylt heiminum."

„Þetta var ekki auðvelt. Hugrekki ykkar, hugarfar og ákveðni var styrkurinn sem við þurftum til að berjast til enda fyrir þessum titli sem tilheyrir öllum á Ítalíu. Stórt faðmlag til ykkar allra."


Athugasemdir
banner
banner